Störf í boði
Um er að ræða fullt starf við varahlutapantanir og afgreiðslu á þjónustuborði, fjölbreytt og krefjandi. Við leitum að einstakling sem er samviskusamur, með skipulagshæfileika, framúrskarandi þjónustulund og hefur gaman af því að umgangast aðra.
Helstu verkefni og ábyrgð
Varahlutapantanir
Afgreiðsla og reikningsgerð
Vörumóttaka
Tiltekt á pöntunum
Almenn lagerstörf
Önnur tilfallandi störf
Menntunar- og hæfniskröfur
Reynsla af varahlutaþjónustu æskileg
Góð tölvuþekking reynsla af DK og Microsoft Office æskileg
Góð ensku og íslensku kunnátta í töluðu og rituðu máli skilyrði. Önnur tungumálakunnátta kostur
Rík þjónustulund
Stundvísi
Sjálfstæði, frumkvæði.
Færni í mannlegum samskiptum
Samstarfshæfni, jákvæðni og sveigjanleiki
Vinna vel í hóp
Skipulagður – Skilyrði
Hreint sakavottorð
Umsækjendur þurfa að vera 30 ára eða eldri
Nánari upplýsingar um starfið veitir Egill Gómez í tölvupósti egill@vikurverk.is
Öllum umsækjendum verður svarað og farið er með umsóknir sem trúnaðarmál.
Hjá Víkurverk starfar góður samheldinn hópur.
Reyklaus vinnustaður