Tékklisti – Að gera vetrarklárt
Athugið að:
- að tæma vatnstank, skrúfið lokið af að ofan og takið tappan úr
- að opna kranana við hliðina á gasboilernum ( þeir eiga að vísa upp þegar þeir eru opnir) og látið vatnið renna niður ( vagnar með truma miðsstöð )
- að opna kranana við hliðina á Alde stöðinni ( þeir eiga að vísa upp þegar þeir eru opnir) og láta vatnið renna niður (vagnar með Alde kerfi)
- að ef vagninn er geymdur úti þá skal loka vatnstanki og krönum við gasboiler og Alde stöð og setja síðan neysluvatnsfrostlög (Winter ban) á vatnstankinn og skrúfa fyrst frá heita vatninu og láta löginn renna í gegnum kerfið
- að tæma klósett vatnskassann ofan í kassettuna með því að sturta öllu niður. Ef vagninn er geymdur úti er upplagt að setja 2,5 lítra af rúðupissfrostlegi á vatnskassann og sturta niður u.þ.b einum líter
- að draga fyrir öll myrkvatjöld (til að minnka hitasveiflur og forðast sagga )
- að reisa sætispullur svo ekki saggi undir þeim
- að hafa hurð á kæliskáp opna (einnig á bökunarofni ef hann er til staðar )
- að hafa skápahurðir opnar til að auðvelda loftflæði
- að aftengja rafgeymi og helst geyma á þurrum og heitum stað
- að láta vatnsdæluna ganga í 30 sek
- að æskilegt er að láta blöndunartækin standa opin ef engin frostlögur er
Umsagnir
Það er engin umsögn um þessa vöru