Mikilvægir hlutir til að gasskynjari virki eðlilega:
- Muna að kveikja á skynjaranum með því að stilla rofann á ON.
- Þegar kveikt er á honum blikkar rautt ljós á 5 sek fresti
- Rétt staðsetning (í skjóli þannig að það blási ekki á hann, rétt fyrir ofan gólf).
- Hreinsun: þurrka af með þurri tusku eða bursta.
- Prófa reglulega með því að setja skynjarann í plastpoka og anda nokkrum sinnum ofan í hann
- Sparið orku með því að slökkva strax á skynjaranum við prófun, muna svo að kveikja á honum aftur.
Hlutir sem gætu komið í veg fyrir að hann virki eðlilega:
- Rofinn er stilltur á OFF.
- Röng staðsetning.
- Eitthvað sem hylur hann, ryk eða drulla.
- Beint sólarljós eða of mikill hiti.
- Hraðar og miklar hitabreytingar.
- Vatn eða of mikill raki.
- Skemmdir eftir högg eða fall.
- Rafmagnslaus
Ekki er tekin ábyrgð á innsláttarvillum.
Verð geta breyst án fyrirvara.
Umsagnir
Það er engin umsögn um þessa vöru